29.2.04

Helgin er búin að fljúga í burtu, það er komið sunnudagskvöld og því skóli í fyrramálið sem er kannski í lagi þar sem ég verð komin aftur í helgarfrí á miðvikudag kl.10 Jibbiií !!!!!!!!

Annars er þetta búin að vera góð helgi, hún byrjaði með því að Carlsberg-bræður þeir Hilmar og Ómar komu í mat, sætir í sér með rauðvín. Strax eftir matinn var svo byrjað að drekka en svindluðu nú einhverjir á Kallaranum hummm . . . eftir nokkra bjóra var kíkt niður í skóla og horft á Svínasúpuna sem var snilld út í gegn. Þar voru Jollinn, Pozi, Bjartmar og Baldur svo eihverjir séu nefndir og stóðu menn sig misjafnlega í drykjunni. Þeir bræður fóru e-ð í pílu og verða úrslitin ekki kynnt hér því þá mun ég fá glóðurauga. Einhvernvegin snérust svo samræður kvöldsins um handknattleik skrítið ég skil þetta ekki allveg. . . . .

Morguninn eftir var mishressandi hjá fólki og voru sumir EKKI sáttir að vera læstir frammi í forstofu og AU�VITA� voru þeir bræður þunnir. Horft var á bikarleik kvenna í tv-inu með mismiklum áhuga og svo rúllaði ég í bæinn með strákunum og fórum við á kalla leikinn en þar var "mitt" (fyrir þá sem ekki vita þá er ég Framari) lið að spila og hitti ég mikið að stelpunum sem ég spilað með hérna einu sinni sem var mjög gaman. Strax eftir leikinn var svo LOKSINS haldið HEIM, klukkan orðin 18 á laugardegi og ég ekki komin heim uss usss. Þegar heim var komið var svo haldið í saumó til Ingunnar en eins og oft áður snérust samræðurnar um lítil börn, bleyjuskiptingar og legvatn endar voru þarna staddar tvær mömmur og ein ófrísk sem skilur okkur Ingunni aðeins eftir og erum við alltaf með krosslagða fingur í von um að þetta sé ekki smitandi ;)

Ætlunin var svo að fara snemma að sofa því lítið hafði verið sofið nóttina áður og stefna tekin í vinnuna næsta morgun en gekk lítið að sofna þar sem ALLIR sem ég þekki voru fullir og í þvíliku spjallstuði gargggggggggg . . .

Náði kannski 3 tímum og var ekkert mjög hress í vinnunnni 5:30 en eins og alltaf var mjög gaman að heilsa upp á strákana. Svona til að setja PUNKTINN yfir helgina kikti ég aðeins á Duus með Ingunni sem var mjög hressandi, gaman að sjá þig Elmar

27.2.04

� dag er fimmtudagur. . . allavega lifi ég í voninni um það, vill ekki trúa því að sé komin helgi og ég ENN á Vatninu, ég held að það sé skoli á morgun

V� hvað maður verður latur á að gera ekki neitt, fór í 2 tíma í handbolta í morgun og er núna bara að bíða eftir að klukkna verði sex svo ég geti byrjað að elda því það er matarboð í kvöld !!
.............. þetta verður eitthvað rugl kvöld, þeir Carlsberg bræður báðir hérna að hösla dömurnar usss ussss, best að venja þær við ;)

26.2.04

Jæja þá er ég búin að kíka í tvöfalt afmæli hjá Katrínu og Steinunni, það var mjög góð mæting og þvílíkar kræsingar umm umm !!

Það stefnir allt í það að ég ætli að verða FYRSTA og eina föstudaginn hérna á Vatninu,allavega í langan tíma, Carlsberg bræður ætlað að kíkja á Vatnið og er þeim auðvitað boðið í mat. Annars er stefnan á mikla ÖLVUN, kvöldið lofar góðu því alltaf er gaman að djamma með þeim bræðrum !!

Ég held að Ingunn vinkona mín sé orðin geðveik, hún var í ALLA nótt í skólanum að LÆRA, núna er tímabært að panta pláss fyrir hana á kleppi ;)

Dagurinn er FULLKOMINN þar sem ég var að tala við tvo sætustu strákana mína á sama tíma (og annar þeirra er staddur á karnivalinu í Rio) og klukkan rétt þrjú, það er ómögulegt að toppa þetta :)
Hilmar og Daði TAKKK !!

Við í E.T. borðuðum á Menam á Selfossi í gærkvöldi, það var mjög gaman og notarlegt. Ætlunin er núna að við komum okkur upp heimasíðu og verður mikið bullað þar því við erum svo klikkaðar sem og myndum upssssss : (

Daði til hamingju með klippinguna !!!!

25.2.04

Aumingja knúsarinn í skólanum mínum og bekknum, ég held að hann se lagður í einelti hérna koma nokkur skemmtileg komment um hann. . .

...að Halli sé kominn á síðasta snúning með að klára tímabilið, þar sem hann sé á leið í sjaldgæfa fegrunaraðgerð, það á víst að fjarlægja bakhárin í eitt skipti fyrir öll !!! (stelpurnar hafa vaxað hann einu sinni)

...að Halli sé búin að hóta félagsskiptum fyrir næsta ár verði ekki farið að hugmyndum hans um nýtt útlit keppnistreyja félagsins. Halli vill að spilað sé í sjálflýsandi gulum spendex hlírarbolum (ó mæ ó mæ).

....Halli súkkulaði hefur tekið gleði sína á ný, eftir að Suðurlandssól tilkynnti verulega verðlækkun, og er hættur að lesa mönnum pistilinn (eða næstum því !!!)...

Að lokum er hér eitt comment um Basta markmann í Selfossi (ÓÞOLANDI)

Michelin kallinn hefur gjörsamlega lokað markinu og enginn hefur fundið leið fram hjá honum eftir að dekkin voru bætt...(hann fékk sér nýja skó puma ekta handbolta skor RIGHT)

Góður dagur í gær var búin í skólanum um hádegi og lærði helling eða litaði held eg hafi kannski ekki lært mikið, gerði þó e-ð. Um kvöldið fór ég svo á körfuboltaleik Laugdælir - �rmann/Þróttur þar sem heimamenn sigruðu með yfirburðum, ég var samt að vonast eftir að Bonnie myndi lemja einhvern en mér var ekki að ósk minni það munaði samt ekki miklu hún var orðin e-ð pirruð þarna í lokin hihihi
Eftir leikinn var svo horft á Amy á neðri hæðinni með Sigga, Kjartani og Bonnie svo var horft á video langt fram á nótt eða rúmlega 2, einhverja þvílikt langdregna mynd þar sem konan sem leikur Amy var að leiak í.

24.2.04

Jæja næsta þriðjudag verður derhúfudagur í bekknum og verður gaman að sjá hvernig til tekst annars stendur til að félagið ET fari á Selfoss og borði saman annað kvöld sem er góð og skemmtileg tilbreyting.

Hilmar til hamingju með mörkin 3 í gær . . . þetta gengur (vonandi) betur næst

Jæja þá er það einn Carlsberg og svo í hátinn það er víst sund klukkan 8 ......

Jæja þá er maður mættur aftur á Vatnið eftir laaaaanga fjarveru, maður finnur að letin svífur á mann :) Það lítur út fyrir að þetta verði erfið vika heilir 13 tímar þessa vikuna uss usss halda yfirmennirnir að maður sé eitthvað ofurmenni,´það er ekki erfitt að sjá að þetta er ALLT of mikið, einn maður stendur ekki undir þessu ca 3 45 min tímar á dag þetta er ÞRÆLDÓMUR

Dagurinn er búin að vera góður er búin að heyra í krullanum mínum sem þessa stundina er staddur í Rio á kjötkveðjuhátíðinni, hrein snilld Daði skemmtu þér ýt vel innan um alla fáklæddu karlmennina ;) oki allars skvísurnar.

Ég ætla líka að þakka skjá 1 fyrir góða dagskra er búin að glápa á 4 þætti sem og Bonnie, Sigga og Kjartani fyrir að stytta mér stundina hér á Laugarvatni.

23.2.04





I'm Rachel Green from Friends!

Take the Friends Quiz here.

created by stomps.





Yessss ég get allveg lifað þótt pabbi dekri mig ekki .......

22.2.04

Ég held að ég sé komin með fráhvarfseinkenni, ekki af Vatninu heldur af internetleysi litli bróðir var á Skjálta með tölvuna helv... F�FLI� !!

Annars er þetta VIKU-frí búið að vera æði búin að vinna og vinna :) en gaf mér þó tíma til að fara í leikhús á Eldað með Elvis sem er algjör SNILLD og á handboltaleik þar sem þeir bræður voru vægast sagt ÞUNNIR hehehehe og auðvitað kíkti ég á Duus það klikkar ekki.

19.2.04

Það er ekki orðið frásögufærandi að fara á kaffihús, ég og Guðný vinkona kíktum á Duus í gær og nei nei okkur var hennt út klukkan 23:30 þá nennti Bói ekki að sitja yfir okkur lengur við eru að tala um að þetta er ekki í fyrsta annað eða þriðja skiptið sem þetta gerist fyrir mig og ég sem hélt að þetta væri eitt af mínum þremur heimilum, núna er ég eitthvað farin að efast :(
Annars byrjar 5 daga fríið bara vel fór í vinnuna í morgun, stundvíslega 5:30 og fólkið er bara orðið spennt fyrir THE DJAMMINU sem verður 6 mars

18.2.04

Jæja þetta hlýtur að verða góður dagur, fer í helgarfrí kl.10 eða eftir 35 min sem er algjör snilld á miðvikudagi ekki leiðinlegt það, þess má einnig geta að helgin stendur fram á mánudag :)

17.2.04

Ég er víst svona týpa af skóm...
soccer cleats
Soccer Cleats- athletic, determined, and strong,
you are probably good at anything you try. you
can be serious but love having a good time
above all. you love sports and when you aren't
on the feild you love hanging out and having
fun with your team-mates.[please vote! thank
you! ]


What Kind of Shoe Are You?
brought to you by Quizilla

er eiginlega frekar svekt . . . fótboltaskór hummm

Jæja fyrst maður er komin með blogg er vist best að skrifa e-ð, ætla fyrsta ða þakka Ingunni fyrir að hafa gert þetta fyrir mig annars hefði ég liklega ALDREI gert þetta knus knus fyrir það sykurpúði !!