23.8.05

Hugmynd mín að fara til Spánar er orðin að veruleika, brottför um hádegi á morgun.

Þessi snilldarhugmynd kom á sunnudagskvöld og var framkvæmd á mánudagsmorgni !!!

20.8.05

Jæja þá styttist í að þetta klikkaða vinnusumar taki enda, það er nánast hægt að telja á fingrum beggja handa hversu marga daga ég hef EKKI farið í vinnuna.

Það sem stendur uppúr er Þjóðhátíð í Eyjum en þangað fór ég með Dada, Svenna og 3 dönum sem ég kynntist þegar ég bjó úti ALLGJÖR snilld !! Ekki má svo gleyma óvissuferðinni sem vinnan fór í, þar stútaði mín ca 1/2 flösku af Gajol staupi sem og nokkrum bjórum og endaði kvöldið í öfurölvun og miklu fjöri. Að lokum fórum við vinkonurnar í súmó sem var mjög gaman.

Þá held ég að það sé upptalið sem ég hef gert í sumar !!
Freyzí vinnuALKI