20.9.05

Það var verið að grínast í mér í morgun, Aldís sagði að það væri snjókoma úti og það var sko ENGIN lýgi það var jólansjókoma úti !!!
En halló það er 20 SEPTEMBER ekki december.

13.9.05

Þá er stelpan LÖNGU komin heim frá Spáni eftir vel heppnaða ferð. Ekki var mikið um djamm en þó var sötrað á hverju kvöldi annaðhvort rauðvín eða bjór. Þetta var meira svona afslöppun hjá mér enda búið að vera strembið sumar. Ekki hafði stelpan mikla þolinmæði í sólbað frekar en venjulega en síðasta daginn láum við Þórhallur í 4 tíma og hafði það sínar afleiðingar hjá mér, 1 og 2 stig bruni á 95% líkamans : (
Óli var mathákur ferðarinnar en hann borði 900g steik, rækjur og eftirrétt eitt kvöldið og það besta var að hann gat labbað sjálfur heim.
Góð fer í alla staði og vill ég þakka strákunum, Þórhalli, Óla, Héðni og Steina fyrir að hafa leiyft mér og Eyþóri að koma !!

Ingunn ég sakna þín líka :*