Helgi frá helvíti ,ég er búin að búa í vinnunni og svo stefnir allt í 1 dags frí þar sem ég á að fara á eitt námskeiðið enn ....
ATH ef þú ert fullur EKKI hringja í mig ef þú ætlar bara að vera með einhver leiðindi.
- íþrótta hvað -
Helgi frá helvíti ,ég er búin að búa í vinnunni og svo stefnir allt í 1 dags frí þar sem ég á að fara á eitt námskeiðið enn ....
Hvað er málið með þessa helv. kennara mína ég er bara búin að fá eina einkunn og það eru 2 vikur síðan ég kláraði prófin hvað er í gangi reyndar er þessi eina einkunn sem ég er búin að fá þessi sem ég hafði áhyggjur af svo en það væri ágætt að fara að fá hina !!!
Jæja það er komið sumar, ég hreinlega bý í vinnunni og það er ekki kominn júní þetta lítur EKKI vel út. Svo eru hreinlega allir í kringum mann að fara til útlanda arggg mig langar svo eitthvert en ætli það verði ekki látið bíða til jóla/áramóta
Jæja þá er stjörnupartýið búið sem hætti reyndar við að vera stjörnupartý því sumir áttu eitthvað erfitt með að finna ser búning. Í staðin beið okkar óvæntur glaðningur þegar við komum er þá fengu stelpur indjánabönd um höfuðið og fjöður og strákar sjóræningjaklút svo vorum við máluð í framan, það var nú ekki drukkið mjög mikið en einhvernveginn tókst mér að verða frekar ölvuð og ekkert of hress og vinna 5.30 morgunin eftir jeeee ..... allavega mætti mín á réttum tíma en ég hef verið hressari hehehe
Jæja þá styttist í stjörnupartýið hjá Aðlinum, við Ingunn erum búnar að ákveða hvaða stjörnur við ætlum að vera en það verður ekki tilkynnt hérna, kemur allt í ljós :D Svo var mér boðið í leikhús í föstudaginn svo maður verður víst að kíkja í Borg óttast og hver veit nema maður kíki á djammið eftir það ....
NÝTT LOOK !!!
Heheh bara fyndið og asnalegt, ég og Aldís vorum að labba með hluta af sófasettinu niður í skóla ..... það leit EKKI vel út meira svona FYNDIÐ en þegar við vorum ca hálfnaðar bauðst einhver MJÖG góður maður til að lána okkur bílinn sinn og kerruna svo við þyrftum ekki að halda á þessu. TAKK TAKK
Jæja þá er þetta eiginlega búið, knattleikir á föst sem er ekkert mál, léttast af öllum prófunum sem segir það að ég er að fara að missa mig í tiltekt og pökkun núna, þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég hlakka mikið til að flytja get EKKI beðið, er búin að vera hérna á Vatninu í tvær og hálfa viku sem er ALLT OF LENGI !!!
Jæja þessu er að ljúka aðeins 2 próf eftir og fjórar nætur hér á Vatninu, 96 tímar í tiltekt ........ ætli það verði svo ekki nokkrir kaldir og vinna strax á sunnudag !!!
Ég er svo ánægð, Ingunn vinkona kíkti í þorpið til mín í gær sem var mjög skemmtilegt, gaman að fá hana í heimsókn. Reyndar kíktum við á Selfoss til að fá okkur kaffi ..... ojojojo þetta var versta og dýrasta kaffið sem við höfum fengið og höfum við smakkað margar gerðir, svo svaf hun hjá mér.
Púki..... á miðvikudaginn eftir verklega sundið það er eftir að hafa verið steikt í sundlauginni og pottinum í meira en 4 tíma ákvað ég að stelast Ãí Borg óttans með Kjartani og hitta Ingunni og Sædísi en hun var að fara að hitta gæann svo ég og Ingunn fórum bara tvær á Thorvaldsen ohhhhhhhhhhh hvað það var gaman að hitta þær, hafði ekki séð þær í 2 vikur !!!
Jæja 2/3 af líffærafræðinni kláraðist í gær og er maður bara að lesa fyrir sundið núna sem er í fyrramálið og svo verður stílsund og sprettir eftir hádegi. Hressandi líf sérstaklega þegar sólin kíkir inn ......en maður lifir þetta af þar sem það styttist óðfluga í sumarfrí jibbíiiiiii !!!!
Veii prófið er á morgun .... já þið lásuð rétt ég sagði veii ég get ekki beðið eftir að fara í þetta helv líffærafræði próf er búin að læra Ãí fimm og hálfan dag fyrir þetta og ég nenni ekki meir !!!